Með þátttöku í Agile netinu er þitt fyrirtæki að:
- Upplýsa umheiminn: Þegar fyrirtækið þitt gengur í Agile netið er merki þess birt á vef Agile netsins og þannig fáið þið formlega tengingu við Agile og Lean aðferðir.
- Fá tengslanet: Komast í samband við önnur fyrirtæki sem stunda Agile og Lean aðferðir. Fyritækin í Agile netinu hittast reglulega og kynna sér starfsemi hvers annars.
Af hverju vil ég upplýsa umheiminn og fá tengslanet?
Hvort sem þú ert að selja þitt fyrirtæki sem Agile og/eða Lean þjónustuaðila eða vilt laða að gott starfsfólk þá er Agile netið leiðin til þess.
Þinn ávinningur af Agile netinu
![](../media/myndir/image2.jpg)
Fyrir utan að vilja betri upplýsingatækniiðnað og betra samfélag þá hefur þitt fyrirtæki nokkrar meginástæður fyrir þátttöku:
- Ásýnd viðskiptavina: Með inngöngu í Agile netið er fyrirtækið þitt að senda skilaboð til viðskiptavina um nálgun sína til verkefnavinnu. Öflugt bandalag Agile og Lean fyrirtækja skapar traust á markaðnum til aðferðanna.
- Leit að starfsfólki: Ef fyrirtækið þitt beitir Agile og Lean aðferðum fær það vettvang til að láta vinnumarkaðinn vita af því og þannig laða til sín hæft starfsfólk.
- Samstarf við verktaka: Agile netið hjálpar fyrirtækinu þínu að finna rétta samstarfsaðilann.
- Ásýnd fjárfesta: Fjárfestar vilja fyrirtæki sem skila framúrskarandi vörum og geta brugðist skjótt við breytingum og tækifærum.